Grasekkja

Já, haldið þið ekki að elskulegur eiginmaður minn sé ekki bara að fara í Evróputúr í fyrramálið! Margrét verður því grasekkja í 2 vikur og þeir sem vilja koma í kaffi og skemmta henni á meðan eru velkomnir. Munið bara að hringja á undan ykkur svo ég geti skrölt úr náttbuxunum og lagt frá mér bókina og jafnvel tekið til á eldhúsborðinu og hellt uppá kaffi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind

Þú átt alla mína samúð systir.

Berglind, 6.5.2008 kl. 07:38

2 identicon

Hey, en ef fólk vill einmitt fá heimilislegt kaffiboð? Þar sem húsfreyjan er í náttbuxunum, drasl á borðum og svoleiðis, mér mundi einmitt finnast það svo notalegt ;)

Anna Málfríður (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband